Til baka í fréttir

Agga-appið hluti af öryggisátaki Landsbjargar fyrir strandveiðisjómenn

Agga-appið hluti af öryggisátaki Landsbjargar fyrir strandveiðisjómenn

Alda Öryggi og Slysavarnafélagið Landsbjörg eru nú í samstarfi varðandi kynningu á Öggu-appinu sem er frítt fyrir smábátasjómenn um allt land. Markmið samstarfsins er að auka öryggi smábátasjómanna með einföldum og aðgengilegum lausnum sem styðja við örugga sjósókn.

Agga-appið er sérstaklega hannað með þarfir smábátasjómanna í huga og nútímavæðir, auðveldar og einfaldar allt utanumhald öryggismála smábáta.  Í appinu er meðal annars hægt að skrá úttektir á búnaðinum um borð, framkvæma hættumat og nálgast ýmsa fræðslu um björgunar- og öryggismál.

Nú þegar strandveiðitímabilið er í fullum gangi er Landsbjörg að leggja áherslu á öryggismál smábátasjómanna, og kynna þar m.a. Öggu-appið sem hluta af fræðslu og markaðssetningu á netinu og í sjónvarpi.

Við hjá Öldu Öryggi erum mjög stolt af þessu samstarfi við Landsbjörg, en sameiginlegt markmið okkar er að efla öryggismenningu á sjó og gera sjómönnum kleift að nýta einfaldar lausnir sem geta skipt sköpum þegar á reynir.  Með aukinni notkun Öggu-appsins skapast mikil tækifæri til að draga úr áhættu og efla öryggi þeirra sem sækja sjóinn.

Lesið allt um Ögguna á www.agga.is og um kynningarátak Landsbjargar á hlekknum hér fyrir neðan

https://www.landsbjorg.is/smabatar

Bókaðu kynningu