Alda hlýtur Hvatningarverðlaun Samtaka fyrirtækja í Sjávarútvegi

Alda fékk hvatningarverðlaun Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi á ársfundi 4 apríl síðast liðinn. Við í Öldunni erum gríðarlega stoltir og þakklátir fyrir að hafa hlotið Hvatningarverðlaun Samtaka fyrirtækja í Sjávarútvegi árið 2025 fyrir nýsköpun okkar í öryggismálum sjómanna. Alda er enn ein staðfesting þess hvaða árangri sprotafyrirtæki geta náð í samstarfi við öflugan sjávarútveg á Íslandi. Það eru bjartir og spennandi tímar framundan í áframhaldandi þróun á Öldunni í samvinnu við íslenskar útgerðir og sjómenn.
