Til baka í fréttir

Alda Öryggi á Sjávarútvegssýningunni í Laugardalshöll

Alda Öryggi á Sjávarútvegssýningunni í Laugardalshöll

Öldu-teymið verður með bás á Sjávarútvegssýningunni Iceland Fishing Expo sem haldin verður í Laugardalshöll dagana 10.-12. september.

Við bjóðum alla gesti hjartanlega velkomna að kíkja við, kynna sér Ölduna og ræða hvernig við getum haldið áfram að efla öryggismálin í sjávarútvegi. Teymið okkarverður á staðnum til að svara spurningum, deila reynslu og veita ráðgjöf.

Á básnum okkar geta gestir kynnt sér hvernig Aldan nútímavæðir öryggismálin til sjós í samvinnu við íslenska sjómenn og útgerðir. Þannig stuðlum við saman að aukinni öryggisvitund á meðal sjómanna og bættri öryggismenningu á sjó.

Við hlökkum til að hitta samstarfsaðila, viðskiptavini og alla þá sem hafa áhuga á öryggismálum til sjós. Sjáumst í Laugardalshöll á bás A17!

https://icelandfishexpo.is/

Bókaðu kynningu