Til baka í fréttir

Alda og Ábyrgar fiskveiðar í samstarf

Alda og Ábyrgar fiskveiðar í samstarf

Alda Öryggi og Ábyrgar fiskveiðar ses. hafa undirritað samstarfssamning sem auðveldar útgerðum að sýna fram á, með gögnum úr daglegum rekstri, að aðbúnaður, réttindi og öryggi áhafna standist kröfur hins alþjóðlega staðals FISH Standard for Crew.

Aðilar hafa verið í þróunarsamstarfi um að gera Ölduna að heildstæðu umsjónarkerfi byggða á staðlinum með því að nýta stafræna lausn Öldunnar sem er nú þegar í notkun hjá mörgum af stærstu útgerðum landsins.

Með samstarfinu fá Ábyrgar fiskveiðar jafnframt heildaryfirsýn yfir stöðu aðildarútgerða á einum stað, sem nýtist við innri úttektir hjá útgerðunum, sem eru leiddar af Sigrid Merino, framkvæmdastjóra Ábyrgra fiskveiða. Þá munu aðildarútgerðir Ábyrgra fiskveiða fá rafrænt stöðumat á skipulagi og framkvæmd öryggismála fyrir áramót.

„Það er mikil áskorun að sýna fram á framkvæmd staðalsins um borð í 134 skipum með pappírum einum saman,“ segir Friðrik Friðriksson, stjórnarformaður Ábyrgra fiskveiða. Með stafrænum gögnum úr Öldu verður sú vinna einfaldari og áreiðanlegri, bæði fyrir útgerðir og fyrir Ábyrgar fiskveiðar sjálfar.

Samgöngustofa hefur viðurkennt Ölduna sem stafrænt öryggisstjórnunarkerfi fyrir fiskiskip, og er samstarfið jafnframt liður í undirbúningi fyrir innleiðingu samþykktar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO 188) um vinnu við fiskveiðar í íslensk lög, sem áætlað er að taki gildi síðla árs 2027.

Við fögnum innilega þessu samstarfi sem eru tímamót og mikið framfaraskref til að viðhalda vottun íslenskra útgerða sem snýr að vinnuaðstæðum og öryggi sjómanna um borð í fiskiskipum.

https://www.mbl.is/200milur/frettir/2026/11/02/thurfa_ad_syna_fram_a_oryggi_ahafna/

Bókaðu kynningu