Til baka í fréttir

Alda Öryggi valið í „landslið“ sprotafyrirtækja í bláa hagkerfinu

Alda Öryggi valið í „landslið“ sprotafyrirtækja í bláa hagkerfinu

Alda Öryggi hefur nýverið verið valið í „landslið“ sprotafyrirtækja í bláa hagkerfinu af Íslenska sjávarklasanum. Á listanum eru 20 fyrirtæki sem öll eiga það sameiginlegt að vinna að nýstárlegum og mikilvægum lausnum innan haf- og sjávartengdrar starfsemi.

Í umfjöllun Morgunblaðsins kemur fram að mikil gróska hafi verið í nýsköpun tengdri bláa hagkerfinu á undanförnum árum og að hugvit og tæknilausnir gegni sífellt stærra hlutverki í þróun greinarinnar.

Alda Öryggi er meðal þeirra fyrirtækja sem valin voru inn á listann fyrir þróun á stafrænu öryggisstjórnunarkerfi fyrir fiskiskip sem byggir á samstarfi við íslenska sjómenn og útgerðir. Markmið lausnarinnar sé að efla öryggisþjálfun, reglubundið öryggiseftirlit og öryggisvitund um borð í skipum.

Það er mikill heiður að vera valin í þennan hóp og staðfestir að sú vinna sem við höfum lagt í að styrkja öryggismenningu til sjós er að skila sér. Við þökkum Íslenska sjávarklasanum kærlega fyrir viðurkenninguna og hlökkum til að halda áfram að þróa lausnir sem stuðla að auknu öryggi og betri vinnuaðstæðum í íslenskum sjávarútvegi.

Bókaðu kynningu