Til baka í fréttir

Aldan verður á Atlantic Fair í Færeyjum

Aldan verður á Atlantic Fair í Færeyjum

Alda Öryggi verður á sjávarútvegssýningunni Atlantic Fair sem fram fer í Færeyjum 19.-21.maí. Sýningin er mikilvægur og spennandi vettvangur sjávarútvegsins í Norður-Atlantshafi þar sem fyrirtæki, útgerðir og fagfólk úr greininni koma saman til að deila reynslu og kynna nýjungar.

Gísli Níls, framkvæmdastjóri Öldu Öryggis, verður á staðnum til að hitta sjómenn, skipstjóra og fulltrúa útgerða í Færeyjum og fræðast betur um stöðu og áskoranir tengdar öryggismálum sjómanna þar í landi.

Jafnframt mun Aldan kynna hvernig fyrirtækið vinnur að því að nútímavæða öryggismál sjómanna á Íslandi í nánu samstarfi við útgerðir, skipstjóra, sjómenn og aðra hagaðila. Markmiðið er að styðja við aukið öryggi, bætta yfirsýn og markvissari öryggismenningu í sjávarútvegi með nýjum lausnum og aukinni samvinnu innan greinarinnar.

Við hlökkum til að hitta gesti á sýningunni og eiga góð samtöl um framtíð öryggismála í sjávarútvegi.

Bókaðu kynningu