Aldan í nýsköpunarvikunni á opna húsi Sjávarklasans

Við hjá Öldunni hlökkum til að taka þátt í nýsköpunarvikunni, í opnu húsi Sjávarklasans við Grandagarð 16, fimmtudaginn 30. apríl. Viðburðurinn er hluti af dagskrá Iceland Innovation Week og stendur frá kl. 14:00 til 16:30.
Við verðum með kynningarbás þar sem gestir geta kynnt sér starfsemi okkar og lausnir á sviði öryggismála sjómanna, ásamt því að eiga samtal við teymið okkar um það sem er efst á baugi í öryggisstjórnun til sjós.
Við hvetjum alla sem hafa áhuga á öryggismálum, nýsköpun og þróun í bláa hagkerfinu til að líta við og spjalla við okkur.
