Til baka í fréttir

Hafrannsóknastofnun komin með bæði skipin í Ölduna

Hafrannsóknastofnun komin með bæði skipin í Ölduna

Haldin var kynning um Ölduna með áhafnarmeðlimum um borð í Þórunni Þórðardóttur í vikunni og farið yfir virkni Öldu-appsins og kerfisins. Áhöfnin var mjög áhugasöm og spurðu menn mikið út í hin ýmsu mál tengd notkun og virkni Öldunnar. Skemmtilegt er að nýr starfsmaður Öldunnar, Þórunn Harðardóttir, ber einmitt sama nafn og skipið.

Guðmundur skipstjóri tók sérstaklega vel á móti okkur um borð og höfum við átt í afar góðum samskiptum við hann í innleiðingarferli Öldunnar um borð.

Þórunn Þórðardóttir er nýjasta skip Hafrannsóknastofnunar og gegnir mikilvægu hlutverki í rannsóknum á haf- og ferskvatni við Ísland. Nú eru bæði rannsóknskip Hafró búin að innleiða Ölduna sem hluta af vegferð Hafró í öryggismálum sjómanna, þar sem stofnunin ætlar sér að vera leiðandi og til fyrirmyndar.

Við bjóðum Þórunni Þórðardóttur hjartanlega velkomna í Ölduna og hlökkum til áframhaldandi farsæls samstarfs við Hafró.

Bókaðu kynningu