Landsbjörg innleiðir Ölduna í öll björgunarskip sín

Alda Öryggi er afar stolt af því að hafa undirritað samning við Slysavarnafélagið Landsbjörg um innleiðingu á Öldu öryggisstjórnunarkerfinu í öll þeirra björgunarskip. Þetta er stór áfangi fyrir okkur og mikil viðurkenning á þeirri vinnu sem lögð hefur verið í þróun og uppbyggingu kerfisins.
Landsbjörg gegnir lykilhlutverki í öryggis- og björgunarstarfi á Íslandi og sinnir útköllum við krefjandi aðstæður þar sem öryggi, skipulag og skýrt verklag skipta öllu máli. Með innleiðingu Öldunnar er markmiðið að styðja enn frekar við öflugt öryggisstarf, bæta yfirsýn og styrkja samræmda öryggisstjórnun í öllum björgunarskipunum.
Landsbjörg stendur okkur hjá Öldunni sérstaklega nærri þar sem við höfum allt frá upphafi unnið að þróun Öldunnar náið með forsvarsmönnum Slysavarnaskóla sjómanna, sem Landsbjörg rekur. Með undirritun samstarfssamningsins var líka innsiglað áframhaldandi þróunarsamstarf á Öldunni og Öggunni öryggis-appi fyrir smábátasjómenn með Slysavarnaskóla sjómanna.
Við hjá Öldu Öryggi þökkum Landsbjörgu fyrir traustið og hlökkum til áframhaldandi samstarfs. Það er okkur sannur heiður að fá að styðja við starfsemi sem skiptir samfélagið allt miklu máli og leggja áfram okkar af mörkum við að auka öryggi til sjós.
https://fiskifrettir.vb.is/oryggisstjornunarkerfi-oldunnar-i-bjorgunarskip/
