Til baka í fréttir

“Nýsköpunarstyrkir Samgöngustofu eru mikilvægur hvati og gæðastimpill“

“Nýsköpunarstyrkir Samgöngustofu eru mikilvægur hvati og gæðastimpill“

Í Fiskifréttum var nýlega umfjöllun um mikilvægi styrkja frá Samgöngustofu fyrir nýsköpunarfyrirtæki sem vinna að því að efla öryggi á sjó. Þar var viðtal við Gísli Níls, framkvæmdastjóra Öldu Öryggis sem lagði áherslu á að slíkir styrkir séu ekki aðeins mikilvæg fjárhagsleg aðstoð heldur einnig sterkur hvatning og gæðastimpill fyrir nýjar lausnir. Fyrir frumkvöðlafyrirtæki eins og Ölduna sem eru að þróa nýjar hugmyndir og tækni tengt öryggismálum á sjó getur stuðningur opinberra aðila skipt sköpum til að hrinda verkefnum af stað og byggja upp trúverðugleika á nýsköpun okkar.

Samstarf við opinbera aðila og stuðningur við nýsköpun gegna mikilvægu hlutverki í þróun stafrænna lausna. Í viðtalinu bendir Gísli Níls á að styrkir Samgöngustofu hafi bæði verið hvati til áframhaldandi þróunar og staðfesting á mikilvægi verkefnisins.

Einnig minnist Gísli Níls á hvað Íslendingar séu leiðandi á heimsvísu í öryggismálum sjómanna, sem megi að stóru leyti tengja við Slysavarnaskóla sjómanna - en einnig séu það blóð, sviti og tár og þrautseigja hjá nýsköpunaraðilum sem dregur þetta áfram. Styrkirnir telja þar mikið, og samfélagið nýtur góðs af og fær þá margfalt til baka.

Við hjá Öldu Öryggi erum þakklát fyrir þann stuðning sem nýsköpun í öryggismálum á sjó hefur fengið og hlökkum til að halda áfram að þróa lausnir sem stuðla að auknu öryggi sjómanna.

Lesa má viðtalið í heild sinni hér:

https://fiskifrettir.vb.is/styrkir-baedi-mikilvaegur-hvati-og-gaedastimpill/

Bókaðu kynningu