Öldu-teymið sigldi inn í SuperClass hjá StartUp SuperNova

Alda Öryggi tók nýverið þátt í SuperClass, vinnustofu á vegum StartUp SuperNova sem ætlað er frumkvöðlateymum með nýsköpunarhugmynd og vilja þróa þær áfram með markvissum hætti.
SuperClass er metnaðarfullt tveggja daga prógram þar sem þátttakendur fá leiðsögn frá reynslumiklum sérfræðingum í nýsköpun, fjármögnun, vöruþróun og markaðsmálum. Teymið okkar nýtti tækifærið til að skerpa á nýsköpun Öldunnar, vinna í framtíðarstefnu og styrkja tengsl við aðra frumkvöðla og lykilaðila á sprotasviðinu.
Þátttakan í SuperClass var mikilvæg vítamínsprauta fyrir Ölduteymið og hvatti okkur til áframhaldandi vaxtar og þróunar í nýsköpun okkar. Takk fyrir okkur kæra Klak-teymi!
