Til baka í fréttir

Þegar tækifærið flýtur framhjá - hugmyndarík áhöfn á Gullver

Þegar tækifærið flýtur framhjá - hugmyndarík áhöfn á Gullver

Á dögunum gripu hugmyndaríkir skipverjar á Gullver svo sannarlega tækifærið þegar þeir sáu þrjú fiskikör á floti fyrir austan land. Þeir ákváðu að drífa í að gera Maður fyrir borð björgunaræfingu þar sem aðgerðir við að “bjarga körum” eru nokkuð sambærilegar aðgerðum við björgun manns úr sjó.

Æfingin var að sjálfsögðu skráð í Ölduna með mörgum myndum, og í ítarlegri og áhugaverðri lýsingu kom fram að samskiptin milli skipstjóra og allra áhafnarmeðlima hafi skipt sköpun þar sem aðstæður voru ekki nógu góðar til að sjósetja léttbátinn.

Allt gekk eins og í sögu og var æfingin mjög gagnleg. Eftir 45 mínútur voru körin komin um borð - en mikilvægi þess að bregðast fljótt við sást vel á því að síðasta karið náði að reka um 0.4 sjómílur á meðan björguninni stóð.

Vel gert að bregðast svona hratt og vel við, skipverjar á Gullver!

https://svn.is/karabjorgun-nytt-sem-bjorgunaraefing/

Bókaðu kynningu