Tómas Þorvaldsson stígur Ölduna í öryggismálum sjómanna.

Aldan rís nú með frystitogaranum Tómas Þorvaldsson hjá Útgerðarfélagi Grindavíkur. Báðar áhafnir skipsins – hjá skipstjórunum Bergþóri og Sigurði – hafa nú fengið kynningu og þjálfun um borð í notkun Öldunnar og eru tilbúnar að taka öryggismál sjómanna á næsta stig. Áhugi og metnaður einkenndi fundina með báðum áhöfnum og hlökkum við í Öldunni mikið til árangursríks samstarfs með áhöfn Tómasar!


