Útvarpsviðtal um Ögguna - frítt öryggisapp fyrir smábátasjómenn

Bylgjan var með skemmtilega umfjöllun um Ögguna í Bítinu fyrr í vikunni. Þar mættu Gísli Níls Einarsson, framkvæmdastjóri Öldu Öryggi og Þorsteinn Þorkelsson, sérfræðingur í öryggis- og fræðsludeild hjá Samgöngustofu í viðtal og fjölluðu um fría öryggisappið fyrir smábátasjómenn, Ögguna.
Aggan getur sinnt mikilvægu öryggishlutverki fyrir smábátasjómenn á strandveiðunum og við hvetjum ykkur til að hlusta á viðtalið - og kynna ykkur Ögguna á www.agga.is
